Jæja þá er ég kominn aftur og með október og nóvember í farteskinu en þetta helst gerðist:
Október: 20-23 Október skruppum við Doddi brá til Englands í smá heimsókn til litla risans mín sem er þar hjá móður sinni í smá tíma en þetta hófst með flugi eldsnemma um morguninn en við fórum með stæl eða með SAGA CLASS og það var bara næs ásamt því að kíkja í SAGA CLASS biðsvæðið sem var mjög flott ásamt því að hafa fríja drykki og mat sem er mjög svo grand
Í fluginu var mjög þægilegt eða lúksusæti og þjónusta og framvegis...
Þegar við komum til Englands var hið fínasta veður og við hlupum beint í að finna hvar við pöntuðum bílaleigubílinn og bókuðum hann en svo hlupum við til að ná complimentry rútunni að leigunni og það var bílstjórinn Andy the Indian sem var hress og mikill sögukall sem fer á eftirlaun 28mars að mig minnir rétt hehe...
Þegar komið var að leigunni fengum við Ford Focus til afnota en það kom upp að við fengum samt vitlausann bíl þar sem við áttum að fá bensín bíl en fengum dísel sem var bara betra þar sem það var ódýrara að keyra...
Svo var það að rata en þetta var eitthvað um 200km akstur og Doddi var kortalesarinn og ég bílstjórinn og mér gékk ágætlega að keyra þrátt fyrir að keyra vitlausu megin miðað við alla aðra í evrópu en við viltumst þar sem leiðbeiningarnar sem við fengum voru frekar óskýrar en það reddaðist með því að taka smá snakk stopp og finna sama afleggjara til baka og halda svo áfram....
Þegar komið var loks á leiðarenda þá hittum við aðalmann bæjarins Hailsham eða Litla Risann hann Þorleif B.H Ómarsson sem var himinn lifandi með að fá okkur í heimsókn
Næstu dagana var skoðað lítiðlega í kringum okkur ásamt að fara á leikvöllinn með aðalmanninum og haft það þægilegt...
Svo þurfti að kveðja en áður en kvatt var þá var skroppið í Brighton í verslunarleiðangur og verslað sem var fínt en það var samt ekki verslað neitt nánast en skoðað vel og var ágætt að vera þarna þrátt fyrir þröngt bílastæðahús og rugling á sumum aðilum hvar ætti að hittast til að borða saman en það var í lagi en skemmtilegt á leiðinni var það að við hlustuðum á hamsturinn live í breska útvarpinu á leiðinni og var það mjög fyndið viðtalið við hann....
Bakaleiðin gékk mjög vel og var það eiginlega fyrir minni ratvísi og minni að við vorum klst á undan áætlun heim og komumst heilir og húfi þrátt fyrir frekar mikinn hraða á hraðbrautunum en trukkarnir voru venjulega hliðina á manni á 120 og maður sjálfur á 130-150 sem var krús hraði á flestum......
Svo var löng bið í flugstöðinni sem var allt í lagi þó að Saga class lobbýið var frekar slappt þarna úti þannig að það sem er í leifsstöð er margfalt flottara
.....
Svo í fluginu var notið þess að hafa fríja drykki og haft það þægilegt þrátt fyrir að hafa ekki fengið eins góð sæti á leiðinni heim og leiðinni út....
Þegar lent var þá var rennt í gegnum flugstöðina og heim til gamlasettinsins að sofa þar sem það var vinna daginn eftir.....
Þetta var það helsta sem gerðist í Október og lítið annað var það þann mánuðinn.....
Nóvember: Eina markverða þennann mánuðinn að ég er byrjaður í sjúkraþjálfum til að laga öxlina og hnéið þar sem þeir vilja ekki skera það þar sem ég er víst enn ungur og fer þessvegna 2-3 í viku í þjálfum og nudd sem er sársaukafyllra en helvíti en maður verður skárri eftir á!!
Einnig er ég að byrja í Mixed Martial Arts í Mjölnis húsinu til að koma mér í form aftur sem veitir ekki af þar sem ég fór í einn tíma og var með strengi í 3 daga eftir á hehe.....
Polerkvöld var í vinnunni og var mjög gaman þrátt fyrir að ég komst ekki í úrslit en næsta plan að halda Bingó kvöld til að koma eldra liðinu með næst
Þetta var það einna helsta þennann mánuðinn....
Og eitt annað .... húsbyggingu frestað í óákveðinn tíma vegna: blankheita, veðurs, mannaflaskorts og myrkurs!!